Lithái rekinn úr landi eftir ítrekuð afbrot: Lifði á velferðarkerfinu

Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest brottvísun litháísks ríkisborgara sem dvalið hefur á Íslandi frá 2023. Maðurinn hefur ítrekað komist í kast við lögin, hlotið marga refsidóma og treyst á félagslega aðstoð síðustu misserin.

Dómarnir hrúuðust upp

Maðurinn fékk sinn fyrsta dóm árið 2024 fyrir þjófnað, eignaspjöll, húsbrot, nytjastuld og vörslu fíkniefna. Þá hlaut hann fjögurra mánaða fangelsisdóm, þar af 45 daga skilorðsbundna.
Árið 2025 bættust við enn fleiri brot: fimm þjófnaðarmál, fjársvik, gripdeildir, fíkniefnabrot og umferðarlagabrot. Hann stal bæði af heimilum og fyrirtækjum – meðal annars fartölvum, símtækjum, fatnaði og áfengi.

Auglýsing

Gæsluvarðhald og brottvísun

Útlendingastofnun tók ákvörðun um brottvísun í febrúar 2025 og bannaði honum að snúa aftur til landsins næstu sjö árin. Maðurinn var þá þegar í gæsluvarðhaldi vegna síbrota.
Hann kærði ákvörðunina og hélt því fram að brot hans væru ekki nægilega alvarleg og að hann hefði engin tengsl við Litháen. Hann hefði aldrei búið þar, talaði ekki tungumálið og ætti engin skyldmenni í landinu.

Útlendingastofnun tók ákvörðun um brottvísun mannsins í febrúar 2025.

Mat yfirvalda: Raunveruleg ógn

Í niðurstöðu kærunefndar kemur hins vegar fram að brotin hafi verið alvarleg og ítrekuð. Tíðni þeirra hafi aukist, fjárhæðirnar hækkað og meðal annars hafi hann brotist inn á heimili fólks.
Nefndin tók undir mat lögreglu um að hann væri yfirvofandi ógn við grundvallarhagsmuni samfélagsins. Því var brottvísunin staðfest, þrátt fyrir mótmæli mannsins.

Lifði á kerfinu

Samkvæmt gögnum var hann aðeins í vinnu í um 10 mánuði eftir komu sína til landsins. Síðan þá lifði hann nær alfarið á atvinnuleysisbótum og félagsaðstoð. Yfirvöld telja það skýrt merki um að hann hafi ekki náð að aðlagast samfélaginu – og í staðinn sé brotaferillinn til vitnis um tilraun hans til að sjá sér farborða með glæpum.

Maðurinn á kost á að skjóta málinu til dómstóla, en slíkt frestar ekki brottvísuninni sjálfkrafa.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing