Litlu mátti muna að skelfilega færi í morgun: Ók blindfullur og sagðist bara vera ungur og vitlaus

Ekki mátti miklu muna að hræðilega færi í morgun þegar Anna Sigrún Benediktsdóttir fór í bíltúr með son sinn. Skyndilega kom bíll á móti þeim á ofsahraða og ljóst var að bílstjórinn hafði misst stjórn á bílnum. Bíllinn svigaði á milli akreina og nálgaðist Önnu og drenginn á ógnarhraða.

Í færslu Önnu Sigrúnar um málið á Facebook kemur fram að drengurinn hafi sofið illa í nótt. Hann hefur oft fengið eyrnabólgu að undanförnu og á erfitt með að sofa nema sitjandi.

„Ég ákvað því klukkan rétt fyrir 7 í morgun að fara smá rúnt með hann, reyna að leyfa honum að hvílast aðeins. Setti róandi tónlist á, hækkaði hitann í bílnum og setti stefnuna á að keyra á Eskifjörð og til baka enda sofnar hann yfirleitt um leið og við keyrum út úr bænum,“ segir í færslu Önnu Sigrúnar.

Þegar þau voru nýkomin framhjá afleggjaranum að álverinu á Reyðarfirði sá hún bílinn koma á móti sér.

„Ég var búin að hægja alveg niður og var að reyna að taka ákvörðun á milli þess að fara yfir á öfugan vegarhelming og treysta því að hann svigaði ekki aftur yfir eða þá að hreinlega keyra bara út af. Ákvörðun sem allt í einu var svo flókin þegar ég var ekki bara ein í bílnum,“ skrifar Anna Sigrún.

Þegar bíllinn var næstum alveg kominn að bíl hennar og drengsins keyrir bílstjórinn út af veginum en veltir bílnum ekki.

„Þremur til fjórum mínútum seinna skjögrar bílstjórinn upp á veg. Skjögrar já, enda blindhaugafullur. Ég hefði ekki verið ábyrgð gjörða minna ef drengurinn hefði ekki verið í aftursætinu og getað horft á,“ skrifar Anna Sigrún.

Hún segir að bílstjórinn hafi borið fyrir sig þeirri ástæðu að vera ungur og vitlaus.

„Kæra fólk. Ekki drekka og keyra. Aldur og skortur á greind verður ekki tekin sem gild afsökun þegar þú (svo ungur og vitlaus sko) hræðir, meiðir, slasar eða jafnvel drepur sjálfan þig og aðra. Lítið barn með eyrnabólgu sem langaði bara að sofa smá. Gerið það. Bara plís,“ skrifar Anna Sigrún.

Auglýsing

læk

Instagram