Logi orðinn afi: Hættir ekki að hrekkja

Sjónvarpsmaðurinn og hrekkjalómurinn Logi Bergmann varð afi á aðfaranótt gamlársdags. Hann er rólegur yfir titlinum og ætlar hann ekki að hætta að hrekkja.

Spurður hvernig það er að vera orðinn afi segir Logi að það sé bara frábært.

Algjörlega meiriháttar. Ég er mjög rólegur yfir titlinum og finn ekki mikið fyrir honum. það er helst að Svanhildi finnist þetta fyndið og gengur um og tautar: Hvað á að gera við afa?

Þar vísar Svanhildur Hólm, eiginkona Loga, í einn umdeildasta og besta Fóstbræðrasketsinn:

Logi er mikill hrekkjalómur og hefur gefið út bók um hrekki, flytur fyrirlestra um vinnustaðahrekki og hefur sjálfur átt í hrekkjastríði við sjónvarpskonuna Sigríði Elvu Vilhjálmsdóttur, eins og Nútíminn hefur greint frá.

Verður þessi virðulegi afatitill til þess að þú leggir niður vopn og hættir að hrekkja?

„Öh. Nei.“

Auglýsing

læk

Instagram