Lögmaður segir þetta vera hættulegustu farartæki landsins og kallar eftir lagasetningu

Eva Hauksdóttir, lögmaður, skrifar í nýrri grein að rafskútur séu orðið eitt hættulegasta fyrirbærið í íslenskri umferð, sérstaklega þegar tillit er tekið til skorts á regluverki og eftirliti með notkun þeirra.

Tilefnið er alvarlegt slys sem varð síðasta vor, þegar hjólreiðamaður fannst illa slasaður á hjólastíg, með brotinn hjálm og sprungið milta eftir að hafa lent á rafskútu sem skilin hafði verið eftir í myrkri undir ljósastaur.

Auglýsing

Enginn ábyrgur – rangt leigufyrirtæki skráð í lögregluskýrslu

Samkvæmt frásögn Evu var ekki hægt að höfða skaðabótamál vegna þess að lögreglan vanrækti rannsókn málsins.

Mynd sem tekin var á vettvangi var úr of mikilli fjarlægð til að greina hvaðan skútan kom, og í skýrsluna var skráð rangt rafskútuleigufyrirtæki.

Afleiðingin er að hvorki er hægt að finna þann sem skildi skútuna eftir né gera leiguna ábyrga.

Skilmálar virka ekki – engar afleiðingar

Eva gagnrýnir harðlega það verklag að rafskútuleigur losi sig undan ábyrgð með því að láta notendur samþykkja skilmála án þess að fylgjast með að þeim sé fylgt.

Hún segir að það eitt að skilja rafskútu eftir á hættulegum stað í myrkri sé hegðun sem skapar raunverulega slysahættu og að fyrirtækin sem leigja tækin beri ákveðna ábyrgð á því hvernig þau eru notuð og hvar þeim er skilað.

Fjölgun slysa óumflýjanleg án nýrra reglna

Í greininni bendir Eva einnig á að rafskútur séu ótrúlega fyrirferðarlitlar og snöggar, en samt eru engar kröfur gerðar til ökumanna um hæfni eða aldur.

Hún segir að fleiri slys séu fyrirsjáanleg, sérstaklega í rökkri og myrkri þegar slík tæki eru skilin eftir á göngustígum og í tröppum.

Til marks um óánægju almennings nefnir hún Facebook-hópinn „Verst lagða rafskútan“ þar sem notendur deila myndum af skútum sem valda óþægindum eða hættu.

Kallar eftir lagasetningu – „Slysavarnir eru ekki flokkspólitík“

Eva endar greinina með áskorun til Alþingis um að setja skýr lög um rafskútuleigur og notkun rafskúta.

Hún segir að þetta ætti ekki að vera pólitískt deilumál heldur einfalt hagsmunamál fyrir alla vegfarendur.

„Slysavarnir eru ekki flokkspólitískt mál og þarf ekki einu sinni að deila um þörfina á skýrari reglum.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing