Lögregla skammar framkvæmdastjóra Fraktlausna fyrir framkomu hans við þjófana

Framkvæmdastjóri Fraktlausna, Arnar Þór Ólafsson, gefur í skyn að hann hafi verið kærður til lögreglu fyrir hótanir eftir að hann hafði samband við mann sem hann telur bera ábyrgð á stuldi á miklu magni af díselolíu frá fyrirtæki hans.

Í færslu á Facebook segir Arnar að hann hafi fengið símtal frá lögreglunni þar sem honum var tjáð að hann hefði framið lögbrot með því að hóta eiganda bíls sem notaður var við þjófnað á Díselolíu á svæði fyrirtækisins.

Auglýsing

Arnar segist hafa hringt í manninn og boðið honum að skila olíunni, annars myndi hann „hafa upp á honum“ og yrði ekki verið ábyrgur gjörða sínar ef hann næði í hann.

Viðurkenndi meintan stuld en kærði svo fyrir hótanir

Samkvæmt Arnari viðurkenndi maðurinn í fyrsta símtalinu að hann væri með olíuna og lofaði að skila henni, sem hann gerði ekki.

Í seinna símtali sagðist hann hafa selt bílinn sem notaður var við þjófnaðinn og neitaði alfarið þátttöku.

Skömmu síðar virðist hann hafa gengið inn á lögreglustöð og lagði fram kæru á hendur Arnari fyrir hótanir.

Arnar segist hafa bent lögreglu á að sami bíll hefði verið notaður ítrekað í öðrum glæpum og að maðurinn hefði boðist til að greiða fyrir olíuna.

Hann gagnrýnir harðlega viðbrögð lögreglu, sem hafi ekki viljað hlusta á hans útgáfu málsins því lögregla sagði hann hafa framið lögbrot og málið skyldi „fara sína leið“ í kerfinu.

„Réttindi glæpamanna virðast skipta meira máli“

Framkvæmdastjórinn lýsir mikilli óánægju með málsmeðferð lögreglu og segir: „Það virðist sem það eina sem skiptir máli eru réttindi glæpamanna.“

Hann bætir við að hann telji málið hafa þróast í „algerlega sturlaða“ átt.

Lögreglan hefur ekki tjáð sig opinberlega um málið að svo stöddu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing