Lögreglustjórinn í Eyjum krefst þess viðbragðsaðilar segi ekki frá kynferðisbrotum á Þjóðhátíð

Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að lögreglan veiti ekki upplýsingar um kynferðisbrot á Þjóðhátíð um verslunarmannahelgina.

Hún skorar á gæslumenn, starfsmenn neyðarmóttöku, heilbrigðisstarfsmenn, sjúkraflutningsmenn og allir þeir sem koma að þessum brotum og fá upplýsingar starfa sinna vegna að veita engar upplýsingar, hvort sem upp koma kynferðisbrot á hátíðinni eða ekki.

Auglýsing

Þetta kemur fram í bréfi frá Páley til viðbragðsaðila sem fjallað er um á Vísi.

Páley segir í bréfinu að flestir aðilar séu bundnir þagnarskyldu samkvæmt lögum en aðrir samkvæmt starfslýsingu sinni og eðli máls.

Ég hef vakið athygli á því að þetta er sérstaklega mikilvægt þegar kynferðisbrot koma upp enda virðast þau vera það sem fjölmiðlar vilja helst fjalla um.

Hún segir afar þungbært fyrir aðila kynferðisbrots að mál séu á forsíðum blaðanna á sama tíma og viðkomandi er að takast á við brot, byrja kæruferli og slíkt.

„Ég legg því til að allir viðbragðsaðilar, allir gæslumenn, starfsmenn neyðarmóttöku, heilbrigðisstarfsmenn, sjúkraflutningsmenn og allir þeir sem koma að þessum brotum og fá upplýsingar starfa sinna vegna gefi engar upplýsingar um þessi mál.

Með engum upplýsingum á ég við að hvorki verði gefið upp hvort að það hafi komið upp brot eða ekki. Besta svarið hvað ykkur varðar er „Við höfum enga heimild til að veita slíkar upplýsingar“.“

Um ástæðuna fyrir þeirri ákvörðun að lögregla veiti ekki upplýsingar um kynferðisbrot til fjölmiðla um verslunarmannahelgina segir hún að ítrekað hafi komið fram hversu þungbært það er fyrir aðila og þá einkum þolendur að þurfa að þola umræðu um viðkvæm mál sín skömmu eftir að þau henda. „Og eðlilegt að þeim sé veitt svigrúm til að standa upp eftir brot og þau fái frið til þess.“

Hún segist vona að þetta skapi meiri vinnufrið hjá lögreglu í þessum málaflokki.

„Kynferðisbrot fá fullt viðbragð lögreglu og fulla rannsókn eins og ætíð og meðferð þeirra vönduð, málin eru skráð eins og skylt er líkt og önnur sakamál og þannig hluti af tölfræði lögreglunnar. Þegar ákæra hefur verið birt eru mál orðin opinber með tilheyrandi vernd fyrir fyrir þolendur.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing