Lögreglan lokaði í kvöld fyrir umferð um Auðbrekku í Kópavogi. Þar voru þrír handteknir á samkomu Vítisengla fyrr í þessum mánuði. Vísir greinir frá þessu í kvöld.
Ekki liggur fyrir hvað lá að baki aðgerðinni nú, og ekki hefur tekist að ná í fulltrúa lögreglunnar vegna málsins.
Aðgerðin minnir á umfangsmikið inngrip lögreglu og sérsveitarinnar fyrir tveimur vikum, þegar þrír voru handteknir í húsi í Auðbrekku þar sem Vítisenglar héldu veislu. Enn hefur ekki verið upplýst hvers vegna þeir voru teknir höndum, en samtökin eru víðast hvar flokkuð sem glæpasamtök.
Að þessu sinni var einnig sendur mikill mannskapur á vettvang. Sjónarvottur segir lögregluna hafa lokað öllum aðkomuleiðum að Auðbrekku og bíl sérsveitarinnar ásamt fjölda lögreglubíla á svæðinu.