Loksins fengu íslenskir kettir sjónvarpsþátt við hæfi: „Ekki trufla, það er drama í gangi“

Árum saman hafa kettirnir okkar öfundað okkur af öllum raunveruleikaþáttunum sem við höfum legið yfir. Það er drama, það er ástarsorg, það er gleði en þeir tengja bara ekki við það eins og við.

Nú þeirra tími kominn, nú hafa þeir Keeping Up With the Kattarshians! Hér er hægt að fylgjast með kettlingunum í beinni. 

Kettirnir skilja af hverju Guðni heldur sig stundum afsíðis, þeir vita af hverju Bríet var að bregða Stubbi. Þeir eru líka með það alveg á hreinu af hverju sumir þeirra kúra alltaf saman í efri koju en aðrir vilja bara sofa í baðkarinu.

Mannfólkið hefur verið duglegt við að deila myndum af köttunum sínum á Twitter sem horfa fullir aðdáunar. Nútíminn tók saman nokkrar.

Ekki trufla mig, það er drama í gangi!

Það getur tekið smá tíma að aðlagast

Ert þú bróðir minn?

Hvar ert þú? Halló!?!

Stundum snýst leikurinn við!

Auglýsing

læk

Instagram