Lús hefur greinst hjá nokkrum nemendum Menntaskólans við Hamrahlíð. Í bréfi sem rektor skólans, Lárus H. Bjarnason, sendi til nemenda kemur fram að einhver tilfelli megi rekja til snertinga við sjálfsmyndatökur eða selfies. Þetta kemur fram á mbl.is.
Lárus segir í samtali við mbl.is að hann fréttir fjölmiðla síðan í vetur um að sjálfsmyndir gætu valdið lúsafaraldri hafi orðið til þess að hann vildi benda nemendum á þann möguleika í bréfinu.
Ég hef enga ástæðu til að halda að það sé minna eða meira tekið af sjálfsmyndum í MH en annars staðar. En fyrir nokkrum dögum fékk ég ábendingu um örfá tilvik innan skólans, við vitum núna um fjóra nemendur sem hafa fengið lús, og mér fannst rétt að senda út bréf til nemenda í öryggisskyni.
Að minnsta kosti 20 ár eru síðan lúsafaraldur kom upp í skólanum, að sögn Lárusar. Hann hefur ekki áhyggjur af því að lúsin náist að breiðast út meðal nemenda.
„Ég býst ekki við að það verði mikil útbreiðsla vegna prófatíma sem er í gangi og er nú langt kominn,“ segir hann á mbl.is.