Maður látinn eftir árás í Breiðholti: Þrír í haldi lögreglu

Karlmaður á fertugsaldri er látinn eftir líkamsárás í Breiðholti í nótt. Þrír menn voru handteknir skömmu síðar annars staðar í hverfinu og eru í haldi lögreglu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, að því er Vísir greinir frá.

Lögreglu barst tilkynning um málið skömmu fyrir klukkan hálftvö. Hún hélt strax á vettvang, sem var utandyra, og fann þar tvo menn með alvarlega áverka. Talið er að þeir hafi hlotið hnífsstungur.

Auglýsing

Mennirnir voru fluttir á slysadeild og skömmu eftir komuna þangað var annar þeirra úrskurðaður látinn. Hinn liggur á gjörgæsludeild og er ástand hans stöðugt.

Viðbúnaður lögreglu var mjög mikill. Leit að árásarmönnunum hófst þegar í stað og þrír menn voru handteknir fljótlega, annars staðar í hverfinu. Þeir eru allir íslenskir, eins og mennirnir tveir sem urðu fyrir árásinni.

Rannsókn málsins er á frumstigi og lögreglan veitir ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing