Mætir á stærstu fréttastöð Bretlands til að segja frá kærumáli á Íslandi

Eldur Smári Kristínsson, formaður Samtakanna 22 og baráttumaður fyrir réttindum samkynhneigðra, mætti í viðtal á fréttastöðina GB News og og þar segist hann sæta lögreglurannsókn vegna færslna á samfélagsmiðlum þar sem hann gagnrýndi meðal annars notkun hormóna hjá transkonum til að framkalla mjólkurmyndun, og lagasetningu sem breytt hefur orðnotkun um foreldra í opinberum gögnum.

Hann segir að ummæli sín hafi verið rangtúlkuð og notuð til að koma á hann höggi.

Auglýsing

„Það sem liggur þar að baki er óhugnanlegt“

Í viðtali við GB News, sjónvarpsstöð sem nú hefur náð meiri áhorfi í Bretlandi en bæði Sky News og BBC, segir Eldur að ein meginfærslan sem hann sæti rannsókn vegna hafi verið gagnrýni á fréttamiðilinn Pink News.

Þar hafi hann lýst efasemdum um getu karla til að vilja gefa ungabörnum brjóst og sagt slíkt gefa tilefni til alvarlegra spurninga.

„Ég notaði orðið sem byrjar á ‘P’ og endar á ‘philia’,“ segir hann og ítrekar að hann hafi ekki verið að saka alla transfólk um slíkt heldur að benda á hugsanlega varasamar hvatir.

Telur opinbera stofnanakerfið „algerlega undirlagt“

Eldur lýsir íslensku samfélagi sem „fullkomlega herteknu“ af gagnrýnilausri innleiðingu kenninga úr hinsegin fræðum.

Hann segir að jafnvel Þjóðkirkjan og embætti biskupsins hafi tekið þessa hugmyndafræði upp að fullu.

„Við erum þjóð undir kvenleiðsögn þar sem stofnanir og jafnvel trúarbrögð hafa samþykkt þetta kerfi,“ segir hann.

Spyr hvað hafi orðið um 117 börn

Eldur vekur athygli á misræmi í opinberum tölum.

Hann segir að samkvælmt opinberum tölum hafi 84 börn hafið kynleiðréttingarferli.

Þjóðskrá hafi hins vegar skráð 201 barn undir 18 ára aldri sem hafi gengist undir lagalega kynbreytingu.

„Hvað hefur orðið um hin 117 börnin? Voru þau send til útlanda í skurðaðgerðir?“ spyr hann.

Fullyrðir að gerð hafi verið árás á hann fyrir kosningar

Eldur bauð sig fram til Alþingis síðastliðið haust og telur aðkomu ríkisútvarpsins að kosningabaráttunni hafa verið skaðlega.

Þremur dögum fyrir kjördag hafi RÚV fullyrt, ranglega, í beinni útsendingu að hann hefði verið fjarlægður af lögreglu fyrir að taka myndir af börnum við skóla.

Hann og fulltrúi framboðsins hafi þá strax leitað staðfestingar frá lögreglu um að hann hefði aldrei verið handtekinn, fjarlægður né kærður, en fengið þau svör að það tæki 30 daga að fá slíka staðfestingu, þegar aðeins þrír dagar voru til kosninga.

„Þetta er kosninga hernaður og afskipti ríkisfjölmiðils af lýðræðislegu ferli,“ segir hann.

Kærður daginn fyrir kosningar

Daginn fyrir kjördag hafi hinsegin samtök lagt fram kæru á hendur honum og hann verið kallaður til yfirheyrslu hjá lögreglu.

Á sjálfum kjördegi hafi fjölmiðlar víða birt myndir af honum með fyrirsögnum sem lýstu rannsókn vegna meintrar hatursorðræðu.

Hóf söfnun fyrir málarekstri

Eldur hefur stofnað fjáröflunarsíðu vegna lögfræðikostnaðar og segir stefnu sína á hendur Ríkisútvarpinu verða tekin fyrir þann 8. október.

Hann segir málið ekki lengur snúast um skoðanaskipti heldur „tilraun til að þagga niður gagnrýni með aðstoð laga og opinberra stofnana.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing