today-is-a-good-day

Magic Johnson heilsaði upp á körfuboltaunnendur á Keflavíkurflugvelli

Körfuboltagoðsögnin Magic Johnson millilenti á Keflavíkurflugvelli í dag á leið sinni yfir Atlantshafið. Hann var afar hress eftir því Nútíminn kemst næst og til í myndatökur með körfuboltaunnendum sem vinna á flugvellinum.

Magic þarf ekki að kynna fyrir þeim sem hafa áhuga á körfubolta en hann er einn sá allra besti sem hefur spilað leikinn. Reykjanesbær er auðvitað einn mesti körfuboltabær landsins og Magic hitti nokkra eldheita aðdáendur.

Haukur Einarsson, starfsmaður á Keflavíkurflugvelli, stillti sér upp með göðsögninni. „Hann var ánægður með Njarðvíkurderhúfuna,“ sagði hann við þetta tækifæri.

Auglýsing

læk

Instagram