María Ólafs og félagar í Eurovision-hópnum eru mætt til Vínar. Hún steig á svið á fyrstu æfingunni í morgun og athygli vakti að tær hennar voru gylltar.
María var á tánum í undankeppninni hér heima og hefur nú greinilega bætt um betur.
Felix Bergsson fylgist með keppninni úti og birti þessar myndir af Maríu á Facebook-síðu sinni. Framundan hjá íslenska hópnum eru strangar æfingar og viðtöl við fjölmiðla ytra sem fylgjast með hverju spori keppendanna.
Dagskrá hópsins er gríðarlega þétt næstu daga og gaman er að fylgjast með uppfærslum frá Felix, sem fylgist vel með. T.d. á Twitter.
Dívan komin í rútuna. Hún er tilbúin! #eurovisionruv #12stig @mariaolafs #aframisland pic.twitter.com/2wGJ2U8saD
— Felix Bergsson (@FelixBergsson) May 14, 2015