María Rut segir Miðflokkinn hafa ógnað öryggi sínu meira en múslimar

María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, sagði á Samstöðinni á sunnudag að ákveðin stjórnmálaöfl hefðu ógnað öryggi hennar og vina hennar og tilverurétti transvina hennar mun meira en múslimar hefðu gert. Þegar hún var spurð hvort hún ætti við Miðflokkinn svaraði hún því játandi og sagði flokkinn verða að kannast við ábyrgð sína.

Orðaskiptin urðu í umræðu um innflytjendamál, móttöku fólks og múslima. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, lagði hins vegar áherslu á að umræðan snerist ekki um trúarbrögð og sagði að skólinn ætti að stuðla að vellíðan allra barna.

Auglýsing

Sagði Miðflokkinn bera ábyrgð

María Rut og Nanna Margrét voru gestir í þættinum Synir Egils ásamt Guðmundi Ara Sigurjónssyni, þingmanni Samfylkingarinnar. Orðaskiptin urðu undir lok þáttarins.

María Rut, sem er hinsegin og hefur lengi barist fyrir réttindum hinsegin fólks, lýsti afstöðu sinni með þessum orðum:

„Sem hinsegin einstaklingur á Íslandi, þá hefur svona mínu öryggi og öryggi minna vina og tilverurétti transvina minna og annað verið miklu meira ógnað af hálfu ákveðinna stjórnmálaafla upp á síðkastið en frá þessum hópi.“

Sigurjón, annar stjórnenda þáttarins, spurði þá: „Þú ert að meina Miðflokkinn?“

„Ég er að meina Miðflokkinn, og það er bara eins og það er. Þau verða að kannast við sína ábyrgð þar,“ svaraði María Rut.

Gagnrýndi alhæfingar um heila hópa

Fyrr í umræðunni hafði María Rut gagnrýnt það sem hún kallaði útilokandi orðræðu. Hún sagði vini sína, þar á meðal múslima, lýsa því hvernig orðræðan birtist þeim.

Hún gagnrýndi að alhæft væri um heila hópa út frá jaðartilvikum eða öfgafullum skoðunum. Slíkt hefði áhrif á börn og fjölskyldur sem hér koma og eru sannarlega bara að vinna sína vinnu og taka þátt í samfélaginu.

María Rut sagði jafnframt að sér kæmi á óvart að hópar sem hefðu haft hátt síðustu daga kæmu nú fram sem sérstakir verndarar hinsegin samfélagsins. Hún spurði Nönnu Margréti hvort Miðflokkurinn myndi ganga til liðs við þau sem vildu tryggja fræðslu í skólum um fjölbreytileika, hinsegin málefni og málefni trans fólks.

Nanna sagði skólann eiga að stuðla að vellíðan allra

Nanna Margrét sagði að þetta snerist ekki um trúarbrögð og benti á að öfgar gætu fyrirfundist í öllum trúarbrögðum, einnig kristni.

Hún sagði þó að til væru tölur um hópa frá ákveðnum svæðum sem ekki væri hægt að horfa framhjá. Spurningin væri hvernig unnið væri með þær upplýsingar. Hún tók jafnframt fram að enginn væri að tala um alla múslima.

Við spurningu Maríu Rutar um fræðslu í skólum svaraði Nanna:

„Ég held bara að skólinn eigi bara að gera það sem hann getur til að öllum líði vel, hvort sem þau eru samkynhneigð, einhverf eða hvernig sem það er.“

Nanna bætti við að ræða þyrfti hvernig það yrði best gert. María Rut sagðist fagna því ef Miðflokkurinn ætlaði að taka þátt í þeirri fræðslu og Nanna svaraði á þá leið að þau þyrftu að taka umræðuna.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing