Marta María Jónasdóttir, blaðamaður á Smartlandinu á mbl.is, verður dómari í Ísland Got Talent á Stöð 2 í vetur. Jakob Frímann Magnússon verður einnig dómari og Dr. Gunni. Þetta kemur fram á Vísi.
Sjá einnig: Ellý og Marta deila: Segir Smartland birta fréttir Fréttanetsins
Enn á eftir að tilkynna hver fjórði dómarinn verður en Bubbi Morthens, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Selma Björnsdóttir og Jón Ragnar Jónsson snúa ekki aftur í þriðju þáttaröð.
Áheyrnarprufum fyrir næstu þáttaröð af Ísland Got Talent er lokið en sýningar á þáttunum hefjast í janúar.