Mastodon kemur fram á Rokkjötnum

Bandaríska þungarokkhljómsveitin Mastodon er væntanleg til landsins og kemur fram á Rokkjötnum í september. Mastodon er ein stærsta þungarokkhljómsveit heims og hefur starfað frá árinu 2000.

Rokkjötnar eru þungarokkveisla í Vodafonehöllinni 5. september. Á Facebook-síðu tónleikanna kemur fram að það þurfi ekki að fara mörgum orðum um Mastodon.

Þeir hafa verið með stærri böndum í rokksenunni um áraraðir og munu sýna okkur þann heiður að vera headline band Rokkjötna í Vodafonehöllinni í ár. Við gætum ekki verið stoltari!

Auglýsing

Íslenskar hljómsveitir koma einnig fram á Rokkjötnum og verða þær tilkynntar síðar. 500 miðar verða seldir í forsölu á sérstöku verði á tix.is þann 1. júní klukkan 12. Almenn miðasala hefst svo síðar.

Hlustum á einn smell með Mastodon.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing