MS á leiðinni í skyrsamkeppni í Bretlandi

Skyrstríð hefst í Bretlandi í vor þegar MS fer í samkeppni við danska framleiðandann Arla.

 

Mjólkursamsalan hefur sölu á skyri í Bretlandi í vor í samkeppni við danska framleiðandann Arla. Þetta kom fram í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í gær.

Auglýsing

Sjá einnig: Svona er skyr auglýst í Bretlandi

Ný skyrauglýsing Arla, sem Nútíminn fjallaði um á mánudag, var til umræðu í þættinum. Auglýsingin er tekin upp á Íslandi en Arla hóf að selja skyr í Bretlandi fyrir um mánuði síðan.

Jón Axel Pétursson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá MS sagði í þættinum að það væri púkalegt af Arla að „stela íslenskri ímynd í hagnaðarskyni.“

Það sem þeir gerðu nýtt í Bretlandi sem okkur finnst svolítið sérstakt er þessi sterka Íslandstenging í auglýsingunni þar sem þeir gefa hálfpartinn í skyn að varan sé frá Íslandi

Jón Axel sagðist í þættinum ekki óttast samkeppnina.

„Þó að Arla sé hundrað sinnum stærra fyrirtæki en MS þá kvíðum við ekki samkeppninni en okkur finnst fúlt að þeir ætli að stela íslensku náttúrunni, íslensku ímynd sem þeir eiga ekkert með að gera.“

Hér má sjá auglýsingu Arla.

https://www.youtube.com/watch?v=5hLvJ5R9C9A

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing