Myndaði hvolpa í sundkennslu

Ljósmyndarinn Seth Casteel sendi á dögunum frá sér bókina Underwater Puppies, eða Hvolpar á kafi.

Bókin fylgir eftir Underwater dogs, eða Hvuttar á kafi, sem kom út fyrir tveimur árum og naut mikilla vinsælda. Casteel tók fleiri en 1.500 hvolpa í sundkennslu og myndaði afraksturinn. Það er í eðli hunda að synda en samkvæmt Casteel þarf að kenna þeim að umgangast sundlaugar, til dæmis hvernig á að komast upp úr þeim.

Casteel er mikill hundavinur eins og fram kom í viðtali við útvarpsstöðina NPR:

Hvolpar færa manni hamingju. Þeim er alveg sama hver þú ert, hvað þú gerir eða hvert þú ert að fara. Þeir vilja bara elska þig og vera vinir þínir. Og ég held að það muni alltaf láta okkur líða vel.

Myndir segja meira en þúsund orð. Myndir Seth Casteel, gjörið svo vel:

slide_368464_4224362_free

slide_368464_4224368_free

slide_368464_4224354_free

Ava Beagle Mix

slide_368464_4224366_free

slide_368464_4224356_free

slide_368464_4224360_free

slide_368464_4224358_free

Pringles and Pickme

o-UNDERWATER-PUPPIES-900

Auglýsing

læk

Instagram