Nanna Kristín situr nakin fyrir á forsíðu MAN

Leikkonan og handritshöfundurinn Nanna Kristín Magnúsdóttir situr nakin fyrir á forsíðu tímaritsins MAN, sem kemur í verslanir á morgun. Nanna Kristín á von á sínu þriðja barni í mánuðinum eins og glöggt má sjá á forsíðumyndinni.

Í viðtalinu kemur fram að líf Nönnu Kristínar hafi kúvenst á stuttum tíma. Hún skildi við barnsföður sinn fyrir rúmum tveimur árum og var sátt við að vera ein það sem eftir væri.

Nú er hún aftur á móti 42 ára, ástfangin upp fyrir haus og á von á barni með kærastanum sínum Gauti Sturlusyni, en fyrir eiga þau samtals fjögur börn. „Sjálfstraustið var brotið og ég gat ekki hugsað mér að hleypa neinum að mér aftur. Ég var ekki á leiðinni í annað samband en svo gerðist það alveg ótrúlega fljótt,“ segir hún í viðtalinu.

Ég var eins og ég sagði, ekkert á leiðinni í annað samband en þessu gat ég engan veginn stjórnað, ég varð bara yfir mig ástfangin og þá varð ekki aftur snúið.

Nanna og Gautur hófu sambúð um hálfu ári eftir að þau kynntust. „Mér fannst þetta ekki erfið ákvörðun enda lá þetta beinast við. Ég tók ekki neitt „Tinder-skeið“. Ég náði kannski alveg „single tímabili“ en þá var ég bara alveg single,“ segir Nanna Kristín í viðtalinu í tímaritinu MAN.

Auglýsing

læk

Instagram