Natalie Portman heldur upp á afmælið sitt á Íslandi

Óskarsverðlaunaleikkonan Natalie Portman er stödd hér á landi. Þetta kemur fram á vef DV.

Portman lætur lítið fyrir sér fara hér á landi en hún er stödd á suðurlandi, samkvæmt heimildum Nútímans. Leikkonan  heldur upp á afmælið sitt á Íslandi en hún varð 34 ára í dag.

Auglýsing

Natalie Portman sást snæða kvöldverð á veitingastað á suðurlandi í gær en annars hefur lítið til hennar spurst.

Portman lék fyrst í tryllinum Léon: The Professional árið 1994 en lék einnig í þremur Star Wars myndum á árunum 1999 til 2005. Hún vann Óskarsverðlaunin fyrir hlutverk sitt í Black Swan sem var frumsýnd árið 2010.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing