Natalie Portman í Reykjavík: Borðaði með fjölskyldunni á Gló

Natalie Portman var stödd í Reykjavík í dag ásamt eiginmanni sínum, franska dansaranum Benjamin Millepied og syni þeirra, Aleph Portman-Millepied.

Sjá einnig: Natalie Portman heldur upp á afmælið sitt á Íslandi

Auglýsing

Þau borðuðu hádegismat á Gló við Laugaveg og vöktu skiljanlega mikla athygli viðstaddra. Heimildarmaður Nútímans segir að stemningin hafi verið nokkuð sérstök inni á staðnum þar sem allir vissu af Hollywood-stjörnunni án þess að nokkur gaf sig á tal við hana.

Portman hefur dvalið hér á landi síðustu daga og hélt upp á 33 ára afmælið sitt í gær. Hjónin kynntust við tökur á kvikmyndinni Black Swan árið 2009. Þau eignuðust Aleph litla árið 2011 og giftu sig ári síðar.

Portman lék fyrst í tryllinum Léon: The Professional árið 1994 en lék einnig í þremur Star Wars myndum á árunum 1999 til 2005. Hún vann Óskarsverðlaunin fyrir hlutverk sitt í Black Swan sem var frumsýnd árið 2010.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing