Uppfært kl. 18.40: Frétt um málið er komin inn á vef Billboard.
—
Ný plata Of Monsters and Men, Beneath the Skin, fer beint í þriðja sæti bandaríska Billboard-listans sem verður birtur síðar í vikunni, samkvæmt nýjum gögnum sem Nútíminn hefur undir höndum.
Platan kom út í síðustu viku og hefur fengið góðar viðtökur.
Einu plöturnar sem verða fyrir ofan plötu Of Monsters and Men þegar listinn verður birtur eru 1989 með Taylor Swift og Drones, ný plata með bresku hljómsveitinni Muse, sem kom út í síðustu viku og fer beint á toppinn.
Beneath the Skin fer einnig beint í fyrsta sæti á sölulistanum í Kanada.
Platan komst einnig í efsta sæti iTunes listans í Bandaríkjunum í síðustu viku og fór einnig inn á listana í Bretlandi, Kanada, Brasilíu, Ástralíu, Austurríki, Þýskalandi, Frakklandi, Ítalíu, Spáni, Danmörku, Svíþjóð og Noregi, svo einhver lönd séu nefnd.
Fyrsta plata Of Monsters and Men, My Head is an Animal, náði hæst sjötta sæti á Billboard-listanum þegar hún kom út árið 2012.