Ný gögn í svokölluðum Epstein-skjölum hafa vakið athygli á ný á því hvernig dauða Jeffrey Epstein í alríkisfangelsi í New York árið 2019 bar að.
Samkvæmt skjölum sem bandaríska dómsmálaráðuneytið birti nýlega sást á öryggismyndavél kvöldið áður en hann fannst látinn það sem lýst er sem „óljósu appelsínugulu formi“ — eða „flash of orange“ — á leið upp stigagang að klefablokkinni þar sem hann var vistaður. Í minnisblaði FBI segir að það gæti mögulega hafa verið fangi sem var fylgt upp, en eftirlitsaðilar innan dómsmálaráðuneytisins telja líklegra að um starfsmann hafi verið að ræða.

Í skjölunum kemur einnig fram að rætt var um mögulega samvinnu Epsteins við saksóknara skömmu fyrir andlátið. Þá var dánartilkynning ranglega dagsett deginum áður en hann lést, sem yfirvöld segja að hafi verið mistök.
Réttarmeinafræðingurinn Michael Baden, sem fylgdist með krufningu fyrir hönd fjölskyldu Epsteins, hefur ítrekað að áverkar á hálsi hans samrýmist frekar kyrkingu en hengingu. Opinber niðurstaða réttarmeinafræðings í New York var þó að um sjálfsvíg hefði verið að ræða.
Daily Mail greinir ítarlega frá nýju skjölunum og þeim spurningum sem þau hafa vakið.