„Á leynilegum stað á höfuðborgarsvæðinu er mjög svalur staður og þar höfum við falið nýjustu flík okkar, Hvannadalshnjúk. Ef þú finnur hana máttu eiga hana!“
Svona hljóma skilaboð frá 66° norður til viðskiptavina sinna og aðdáenda.
66° norður er með ratleik í gangi á Facebook-síðu sinni en þar birtast vísbendingar hvar á höfuðborgarsvæðinu nýjasta flík fyrirtækisins er falin.
Um er að ræða skel sem er hönnuð sérstaklega til að mæta þörfum björgunarsveitanna og er nefnd Hvannadalshnjúkur, í höfuðið á hæsta tindi landsins.
Samkvæmt tölvupósti sem sendur var á starfsfólk í verslunum 66° norður og Nútíminn hefur undir höndum hefur borið á því að fólk mæti í búðirnir og segist vera með leyniorð sem á að virka sem vísbending í ratleiknum.
Starfsfólki búðanna er bent á að það eina í stöðunni sé að segjast ekkert geta sagt.
Vísbendingarnar sem eiga eftir að koma munu útskýra þetta og viðkomandi þurfi því að bíða eftir þeim. Leikurinn er vissulega erfiður en hann á líka að vera það.
Ratleikurinn er ansi snúinn.
Í gær birtist til að mynda talnaruna sem notandi á Facebook komst að því að stóðu fyrir símanúmer sem hann hringdi í. Hann náði hins vegar engu samhengi úr orðunum sem lesin voru upp af sjálfvirkum símsvara.
Í dag birtist önnur vísbending sem er jafnvel snúnari. Vísbendingarnar má sjá hér.