Sigríður Björk Guðjónsdóttir, nýr lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hefur skráð nafn sitt á Twitterreikninginn @logreglustjori. Stefán Eiríksson fráfarandi lögreglustjóri, stofnaði reikninginn á sínum tíma en er byrjaður að tísta undir eigin nafni, eins og Nútíminn greindi frá á dögunum undir dramatískri fyrirsögn.
Nýr lögreglustjóri tekur brátt við hjá LRH og þessum þræði. Þakka kærlega samfylgdina á liðnum árum. Held áfram að tísta hér @StefanEiriks.
— Sigríður Björk Guðj. (@logreglustjori) August 28, 2014
Sigríður á ennþá eftir að skrifa fyrsta tístið en þangað til hefur lögreglan fest ofangreinda færslu efst á Twitter-síðu hennar. Á meðan bíða tístarar með öndina í hálsinum en forveri hennar var afar virkur og vinsæll á samfélagsmiðlinum.