Nýr vefur Séð og heyrt eins og Gayiceland.is

Glanstímaritið Séð og heyrt opnaði á dögunum fréttavef sem inniheldur efni úr blaðinu ásamt fréttum og öðru. Samkynhneigðir netnotendur ráku eflaust upp stór augu þegar þeir sáu vef Séð og heyrt þar sem hann er afar svipaður í útliti og vefurinn Gayiceland.is.

Þetta á sér þó eðlilegar skýringar og enginn er að stela frá neinum. Vefirnir nota báðir sama útlitsþema, nánar tiltekið Valenti frá framleiðandanum Cubell. Fjölmargir vefir notast við tilbúin útlitsþemu, sem hægt er að kaupa á hagstæðu verði frá erlendum framleiðendum. Nútíminn er t.d. einn af þessum vefum, þó hann notist ekki við sama þema og vefir Séð og heyrt og Gayiceland.is.

Auglýsing

læk

Instagram