Nýtt myndband frá dularfullum söngvara: Hver er Sturla Atlas?

Myndband við lagið Over Here með Sturlu Atlas kom út í dag. Þau sem fylgjast með Nova á Snapchat urðu eflaust vör við söngvarann í morgun en Pétur Kiernan, úr grínhópnum 12:00, sér um færslurnar til að kynna útgáfu lagsins.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Kassamerkið #sturlaseason hefur undafarið verið notað til að kynna lagið og væntanlega plötu, Love Hurts, sem kemur út 4. júní.

Logi Pedro úr Retro Stefson syngur með Sturlu í laginu og vinnur einnig með honum tónlistina. Sjálfur er Sturla nemandi í LHÍ og hefur gefið út tónlist undir ýmsum dulnefnum síðustu ár.

Auglýsing

læk

Instagram