Of Monsters and Men sendi í dag frá sér lagið I of the Storm. Lagið er af væntanlegri plötu hljómsveitarinnar, Beneath the Skin, sem kemur út 8. júní á Íslandi á vegum Record Records.
Hljómsveitin leggur í tónleikaferðalag á næstunni og eru fyrstu tónleikarnir fyrirhugaðir í Massey Hall í Toronto í Kanada 4. maí.
Sjá einnig: Of Monsters and Men klárar plötu í Los Angeles
Það er hann Atli Freyr demantur sem er stjarna textamyndbandsins að þessu sinni en Siggi Sigurjóns sló eftirminnilega í gegn í síðasta textamyndbandi hljómsveitarinnar.
Textamyndbandið má sjá hér fyrir neðan.