Óboðinn gestur stalst í heita pottinn á Melum: Kvíga vildi komast í pottapartí

Bændurnir á Melum í Hrunamannahreppi fengu óvæntan gest til sín í heita pottinn í morgun. Kvíga sem var nýkomin út í sumarið skellti sér í bað. Þetta kemur fram á vef Sunnlenska.

Guðjón Birgisson, garðyrkjubóndi á Melum, segir í samtali við Sunnlenska að hann hafi orðið var við tvær kvígur á röltinu í morgun.

Þær höfðu sloppið úr girðingu hjá Alla á Hrafnkelsstöðum og rölt yfir til okkar. Ég elti þær upp á verönd og þar voru þær að kíkja á gluggana hjá okkur. Ég veit svo ekki fyrr en önnur þeirra bröltir upp á heita pottinn og hrynur ofan í hann.

Auglýsing

Nútíminn heyrði í Guðjóni sem var laufléttur og sagði að kvígunni hafi ekki orðið meint af. „Hún fór á bólakaf ofan í pottinn og skvetturnar gengu í allar áttir.“

Spurður hvort hann hafi ekki náð myndbandi af látunum segir hann þetta hafa gerst svo hratt að of lítill tími gafst til þess.

Guðjón tók myndina þegar hún var að koma sér upp úr pottinum. Alli á Hrafnkelsstöðum kom svo og sótti hana þannig að Guðjón skilaði henni hreinni.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing