Ögrandi mynd um stelpu sem gerist „cam girl“

Webcam er ný íslensk kvikmynd í fullri lengd sem verður frumsýnd síðar á þessu ári. Anna Hafþórsdóttir og Telma Huld Jóhannesdóttir eru í aðalhlutverkum í myndinni sem fjallar um stúlku sem gerist svokölluð cam girl og byrjar að fækka fötum fyrir framan vefmyndavél.

Í dag var birt stikla úr myndinni og bendir hún til þess að myndin sé ansi ögrandi. Stikluna má sjá hér fyrir neðan:

Sigurður Anton Friðþjófsson leikstýrir myndinni ásamt því að skrifa handritið og Magnús Thoroddsen Ívarsson framleiðir.

Auglýsing

læk

Instagram