Íslenskir farsímanotendur munu frá og með 1. október greiða sömu gjöld fyrir farsímaþjónustu í Bretlandi og í öðrum ríkjum innan EES og ESB. Reglugerð þess efnis hefur verið birt í Stjórnartíðindum og er markmið hennar að tryggja að notendur sem eru í viðskiptum við íslensk fjarskiptafyrirtæki greiði ekki hærra gjald í Bretlandi en annars staðar í Evrópu. Fréttastofa Sýnar greinir frá.
Heimaverðskrá gildir í Bretlandi
Samkvæmt reglugerðinni skulu fjarskiptafyrirtæki bjóða viðskiptavinum sínum svokallaða Roam Like Homeheimaverðskrá þegar þeir ferðast til Bretlands, svo lengi sem notkunin samræmist eðlilegu ferðamynstri. Reglan nær þó ekki til viðvarandi reikis, þegar notandi er að mestu leyti búsettur erlendis.
Bretland aftur komið inn í þjónustuna
Sýn, Síminn og Nova hafa þegar bætt Bretlandi inn í Reiki í Evrópu þjónustu sína. Bretland féll út þegar landið yfirgaf Evrópusambandið, en innviðaráðuneytið hóf undirbúning nýrrar reglugerðar til að koma í veg fyrir „óhófleg gjöld“. Nú hefur reglugerðin tekið gildi.
Samræmi við Evrópu
Í tilkynningu ráðuneytisins segir að reglugerðin sé sett til að samræma Ísland við önnur EES- og ESB-ríki. Hún tryggir að ekki þurfi að greiða hærri gjöld fyrir talsíma, smáskilaboð eða netþjónustu einungis vegna ferðalaga innan Evrópu.
Tekur gildi 1. október
Reglugerðin byggir á fjarskiptalögum nr. 70/2022 og tekur formlega gildi 1. október. Fjarskiptafyrirtæki á Íslandi hafa þó þegar hafið breytingar á gjaldskrám sínum eftir að áformin voru kynnt síðastliðið sumar.