Langur sakaferill
Lögregla segir manninn hafa farið úr strætó á eftir konunni áður en árásin átti sér stað. Hún fannst með fjölmörg stungusár á mánudagskvöld og var úrskurðuð látin á vettvangi.

Gögn málsins sýna að maðurinn hafði ítrekað verið handtekinn frá árinu 2023, meðal annars vegna alvarlegra líkamsárása. Nokkur mál féllu niður, meðal annars þar sem ekki tókst að ná í fórnarlömb eða þau vildu ekki bera vitni.
Saksóknaraembættið í Fairfax hefur staðfest að hann hafi áður verið dæmdur fyrir líkamsárás og setið í fangelsi.
Hvernig gat þetta gerst?
Málið hefur vakið hörð viðbrögð í Virginíu. Margir spyrja hvernig maður með svo langan og ofbeldisfullan sakaferil hafi ítrekað verið látinn laus.
Fulltrúar ákæruvaldsins hafa bent á að erfitt geti verið að fylgja málum eftir þegar vitni finnast ekki eða draga sig í hlé. Fyrrverandi saksóknari sagði að slíkar aðstæður geri ákærur erfiðar – en bætti við að ljóst væri að almenningur eigi rétt á svörum.
Morðið hefur einnig vakið upp umræðu um önnur svipuð mál í Bandaríkjunum þar sem gerendur höfðu áður verið handteknir ítrekað áður en alvarlegir glæpir voru framdir.