Opna sérstakan gin og tónik bar

Áform eru uppi um að opna  fyrsta sérhæfða gin & tónik barinn á Íslandi. Slíkir barir eru vinsælir í stórborgum Evrópu, einkum í suðurhluta álfunnar. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu.

Í Viðskiptablaðinu kemur fram að félagið Blautur ehf., sem á og rekur Lebowski bar, hafi skráð vörumerkið Ginandtonicbar.is hjá Einkaleyfastofu.

Auglýsing

Arnar Þór Gíslason, forsvarsmaður félagsins, segir í Viðskiptablaðinu að barinn sé enn á hugmyndastigi. „En við erum samt búnir að vera að hugsa um þetta í svolítinn tíma,“ segir hann.

Ég held að það sé alltaf markaður fyrir góða bari, sérstaklega þá sem hafa algjöra sérstöðu og reyna að gera út á að skapa eitthvað nýtt.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing