Sérstakur BDSM sýningarsalur opnar í versluninni Rómantík.is í Skeifunni í maí. Þetta kemur fram á mbl.is.
Jón Ingi Hrafnsson, eigandi Rómantík.is, segist í samtali við mbl.is taka eftir auknum áhuga á BDSM leikföngum í kjölfar vinsælda 50 Shades of Grey bókanna og kvikmyndarinnar.
„Umræðan hefur verið að opnast og fólk virðist vera að fikra sig meira áfram,“ segir Jón Ingi á mbl.is.
Í salnum verður kynlífsróla og allur þessi helsti búnaður sem er notaður. Það er hvergi hægt að sjá þessar vörur almennilega á Íslandi og við ætlum bara að taka þetta skrefinu lengra.
Hann bætir við að BDSM þurfi ekki að vera eins gróft og fólk heldur.
„Í 50 shades of Grey er til dæmis sadómasókískt BDSM en við viljum kynna allan skalann betur fyrir fólki,“ segir hann. Ekki verður leyfilegt að prófa tækin en hægt verður að fá leiðbeiningar um notkun þeirra.