Orkulúr dregur dilk á eftir sér: „Þegar ég vaknaði voru ódámarnir byrjaðir að dæla inn myndum“

Haukur Viðar Alfreðsson, texta- og hugmyndasmiður á auglýsingastofunni Brandenburg, fékk sér lúr í hádeginu. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema vegna þess að samstarfsfólk Hauks ákváðu að hrekkja hann frekar duglega og birta á Facebook.

Mynd var tekin af grunlausum Hauki þar sem hann svaf. Hann var svo klipptur út úr myndinni og komið fyrir í ýmsum sprenghlægilegum aðstæðum.

Auglýsing

Sjálfur hugsar Haukur samstarfsfólki sínu þegjandi þörfina, enda þreyttur eftir að hafa horft á leik í úrslitum NBA-deildarinnar í nótt.

„Þetta var nú bara 15 mínútna orkulúr,“ segir hann.

Ég vakti yfir NBA í nótt og ákvað að loka augunum eitt augnablik á meðan hinir fengu sér hádegismat. Þegar ég vaknaði voru ódámarnir byrjaðir að dæla inn myndum.

Afraksturinn er alveg fáránlega fyndinn. Upprunalega myndin er efst og eins og myndirnar fyrir neðan sýna varð einhvers konar listrænt stjórnleysi á Brandenburg.

 

Og hér höfum við myndirnar.

11407075_912827518740132_572549064566303311_n 11138137_912827578740126_1285664063059293948_n

Haukur hugsar sig eflaust tvisvar um fyrir næsta lúr.

11036490_912827595406791_8390055003856349835_n 11391136_912827492073468_3205109639596730775_n

Ok. Við hlógum upphátt.

11406768_912827582073459_182852382914551190_n 11393025_912827502073467_8894210105532364826_n 11407155_912827435406807_2052651858638194840_n

Þetta er allt of fyndið.

10458430_912827468740137_6948179703630332264_n 11351126_912827458740138_8586821880239851388_n

Dreptu mig ekki!

11401589_912827368740147_5938080221497265198_n 11391206_912827452073472_5980540757743198501_n

Nú er okkur öllum lokið.

11108346_912827318740152_3486752999553782614_n 11401434_912827355406815_7368518612068323117_n

Allt of fyndið.

11099891_912827365406814_7282159123403535759_n 11535714_912827328740151_4443240592703827611_n

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing