Ótrúlegasta fólk flytur kókaín til landsins innvortis: „Það er allt morandi í þessu hérna“

Haldlagning tolls og lögreglu virðist nær engin langtímaáhrif hafa á framboð eða verð á fíkniefnamarkaði. Þetta kemur fram í úttekt á íslenskum fíkniefnamarkaði í Viðskiptablaðinu í dag.

Viðskiptablaðið ræddi við aðila sem hefur nokkurra ára reynslu af markaði með fíkniefni, einkum kókaínmarkaði. Hann kemur ekki fram undir nafni í umfjöllun blaðsins.

Auglýsing

Hann segir hagnaður götusala á sölu kókaíns um 6 til 8 þúsund krínur af hverju grammi. Það fer eftir íblöndun og styrkleika.

Fyrir hefðbundinn smásala geti hagnaður því verið allt að 600.000 – 800.000 krónur á mánuði, en hjá mörgum þeirra sé hann þó heldur rýrari þar sem þeir neyti efnisins sjálfir.

Hann segir að haldlagningar á fíkniefnum hafi engin áhrif á markaðinn.

„Þetta hefur ekki nein áhrif. Það er allt morandi í þessu hérna, miklu meira en fólk almennt heldur. Það er aldrei þurrkur, og kannski einu sinni á ári sem það verður vart við einhvern skort. Það eru alltaf að koma inn nýjar sendingar.

Í dag er þetta þannig að efnin koma mikið til innvortis. Það er öruggari leið, þar sem þú kemur minna magni inn, en líkurnar á því að fólk sé tekið með eitthvað innvortis eru minni en þegar þú ert með stórar sendingar sem koma til dæmis í ferðatöskum.“

Hann segir í Viðskiptablaðinu að ótrúlegasata fólk sé að flytja inn fíkniefni.

„Einu sinni voru þetta færri og stærri innflytjendur. Núna fer meira af venjulegu fólki oftar út og kemur heim með minni sendingar.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing