Patrick Pothuizen stóð við stóru orðin og þreif hús Hannesar: „Aldrei vanmeta Ísland“

Patrick Pothuizen, liðstjóri hollenska liðsins NEC Nijmegen, stóð við stóru orðin í dag og þreif hús Hannesar Halldórssonar, markvarðar liðsins og íslenska karlalandsliðsins í fótbolta.

Hannes upplýsti á Vísi fyrir leik Hollands og Íslands á dögunum að að Pothuzen myndi þrífa húsið sitt hátt og lágt ef Ísland myndi vinna leikinn.

Það er gæi í liðinu sem er team manager, sér um allt, og hann fullyrðir að Holland muni stúta okkur. Hann ætlar að þrífa allt húsið mitt ef Holland vinnur okkur ekki. Hann er það sigurviss.

Auglýsing

Ísland vann svo leikinn og Hannes greinir frá því á Facebook í dag að Pothuizen sé maður orða sinna.

„Hann stóð sig stórkostlega á ryksugunni. Hann hefur lært verðmæta lexíu: Aldrei vanmeta Ísland!“ sagði Hannes.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing