Nútíminn greindi frá opnun vefsíðunnar Perravaktin í morgun. „Perravaktin er vefsíða tileinkuð þeim sem hafa orðið fyrir barðinu á ömurlegum perrum. Þetta er staðurinn til að koma upp um þá, til að sýna heiminum skömm þeirra. Perravaktin einbeitir sér aðallega að hefndarklámi og því að koma upp um þau sem deila því og dreifa,“ segir í lýsingu á síðunni.
Aðstandendur síðunnar vilja ekki koma fram undir nafni en í tölvupósti til Nútímans segjast þeir hafa fengið mikil viðbrögð.
Það er erfitt að segja til um hvað eru viðbrögð þeirra sem við ætlum að afhjúpa, þar sem margir senda okkur nafnlaust, en við höfum fengið ýmis skilaboð sem sýna að við erum að rugga bátnum. Það er mikil reiði, en það er svo sem við því að búast þegar við búum í samfélagi sem þykir óþægilegt að sjá gerendur nafngreinda.
Á vefsíðunni eru meðal annars símanúmer, Skype-nöfn og tölvupóstföng fólks afhjúpuð. Í lýsingunni á síðunni kemur fram að Perravaktin hafi verið sköpuð eftir að aðstandendur: „fengu nóg af því að hefndarklámi væri dreift um internetið í gegnum chan-síður og íslenskar perrasíður eins og ringulreið“.
Á meðal þeirra sem voru afhjúpaðir í dag er drengur sem verður 18 ára ár. Perravaktin birtir spurningu frá lesanda sem spyr meðal annars hvort börn eigi heima á síðunni. Í svari frá aðstandanda síðunnar segir meðal annars að drengurinn hafi beitt ofbeldi:
Þetta er ofbeldi gegn kynfrelsi, þetta er kúgun og þetta er drusluskömmun. Þetta er bara of algengt, og of skaðlegt, til að hunsa eða þykjast að þeir vaxi upp úr þessu. Vaxa þessar stelpur upp úr því að hafa verið beittar þessu ofbeldi? Þótt þær verða eldri, þá eru myndirnar ávallt í umferð. Þetta er ekki bara eineltismál, þetta er hreint og klárt kynferðisofbeldi, og það er skelfilegt að sjá hversu ungt fólkið er sem tekur beinan þátt í því. Það þarf að taka ábyrgð. Ein leið til þess að vekja samfélagið til umhugsunar er með að opinbera vandamálið og opinbera gerendur. Sumir gerendur eru samt það ungir að við höfum frekar samband við foreldra þeirra. En 17/18 ára manneskja ætti að vita betur. Auðvitað er samt hægt að hafa samband við Perravaktina, aðstandendur t.d. eða þolendur, og komast að einhverri sátt.
Smelltu hér til að skoða Perravaktina.