today-is-a-good-day

Pete Davidson lætur Kanye West heyra það: „Geðsjúkdómur ekki afsökun til að haga sér eins og fífl“

Pete Davidson nýtti tækifærið í sjónvarpsþættinum Saturday Night Live í Bandaríkjunum í gærkvöldi og lét Kanye West heyra það. Kanye var gestur í þættinum fyrir viku síðan og hélt þá umdeilda ræðu til stuðnings Donalt Trump.

Ræða Kanye var ekki hluti af útsendingu þáttarins en áhorfendur í sal náðu henni á myndband og deildu á Twitter.  Davidson segir að uppákoman hafi verið eitt það vandræðalegasta sem hann hefði upplifað í þáttunum.

Hann segir geðsjúkdóm Kanye West enga afsökun fyrir því að láta eins og fífl. Hann mælir með því að Kanye byrji að taka lyfin sín á ný, það sé engin skömm í því.

Sjáðu ræðu Davidson

Auglýsing

læk

Instagram