Ráðist var á tónlistarmanninn og Jackass-meðliminn Bam Margera í baksviðsaðstöðu tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice í kvöld. Þetta kemur fram á mbl.is.
Árásin átti sér stað skömmu eftir klukkan 23 í kvöld. Heimildir Nútímans herma að Margera hafi verið í annarlegu ástandi að áreita starfsfólk hátíðarinnar þegar sauð upp úr. Fjöldi lögreglumanna og gæslufólks stöðvaði slagsmálin og í kjölfarið var aðstöðunni lokað.
Þetta staðfestir Ósk Gunnarsdóttir, talsmaður hátíðarinnar, í samtali við Vísi.
Hún segir að eftir að honum var meinaður aðgangur að herbergi baksviðs hafi hann tekið að áreita starfsstúlkur og að mennirnir sem réðust á Bam hafi verið að koma þeim til hjálpar.
Vel sá á Margera eftir árásina og var hann með blóðnasir. Ekki þótti þó ástæða til að kalla til sjúkrabíl.
Margera kom fram ásamt hljómsveit á hátíðinni fyrr í kvöld. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt í hópnum Jackass, sem var með vinsælan þátt á MTV ásamt því að framleiða kvikmyndir.
Hann hefur verið reglulegur gestur hér á landi síðustu misseri, gekk í hjónaband hér á landi ásamt því að eyðileggja bílaleigubíl, svo eitthvað sé nefnt.