Spaugstofan stendur fyrir sýningu í Þjóðleikhúsinu í haust í tilefni þriggja áratuga afmælis þáttanna.
Athygli vekur að Randver Þorláksson snýr aftur á vaktina í Spaugstofunni en Pálmi Gestsson, Karl Ágúst Úlfsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason voru fjórir með þáttinn frá árinu 2007.
Örn Árnason segir í samtali við mbl.is að sýningin verði ekki beinlínis upprifjun.
Við ferðuðumst í mörg ár um landið með skemmtisýningu þar sem persónur Spaugstofunnar voru innanborðs. Við ætlum að tvinna þetta einhvern veginn saman og leyfa gömlum félögum að kíkja í bæinn.
Spaugstofan var sýnd á RÚV um árabil en var á Stöð 2 frá árinu 2010. Þátturinn var tekinn af dagskrá í fyrra samningurinn við þá var ekki endurnýjaður.