Reiði vegna kynfræðslu í skólum: 14 ára strákar fengu leiðbeiningar um hvernig megi „kyrkja kærustur sínar á öruggan hátt“

Fræðsluefni fjármagnað af sveitarfélagi olli miklu fjaðrafoki í Bretlandi en Bridgend-sveitarfélagið í Suður-Wales er nú í miklu basli eftir að í ljós kom að kynfræðsluefni, sem sýnt var unglingum í grunnskólum, innihélt leiðbeiningar um kyrkingu í kynlífi.

Efnið, sem var í PowerPoint kynningu frá forvarnarsamtökunum Assia, sagði að „samþykki (þegar kemur að kyrkingu í kynlífi) þurfi að fá í hvert sinn sem slíkt kemur til greina“.

Auglýsing

Þá sagði einnig að „aldrei sé í lagi að byrja að kyrkja einhvern án þess að spyrja fyrst og gefa rými til að segja nei“.

Sérfræðingar gagnrýna efnið harðlega

Mörg samtök og fræðimenn hafa lýst áhyggjum sínum af því hvernig efnið gefi til kynna að hægt sé að kyrkja á „öruggan“ hátt.

Michael Conroy, stofnandi samtakanna Men at Work, sagði í samtali við The Times að þetta væri ekki kynfræðsla heldur „klámvæðin“.

„Hugsaðu þér að vera 14 ára stúlka sem hefur sagt kærastanum sínum að hún vilji ekki vera kyrkt, en svo kemur einhver frá yfirvöldum og segir að þetta sé allt í lagi,“ sagði Conroy.

Ungt fólk verði fyrir áhrifum poppmenningar og kláms

Kynlífsfræðingurinn Peggy Orenstein rifjaði upp að 15 og 16 ára nemendur hefðu spurt hana út í kyrkingu, þar sem einn drengur spurði: „Af hverju vilja allar stelpur vera kyrktar?“

Hún segir vinsæla menningu hafa aukið tíðni þessarar hegðunar, þar á meðal sjónvarpsþættir eins og Euphoria og lög eins og „Lovin On Me“ eftir Jack Harlow.

Sveitarfélagið hafnar ásökunum

Bridgend sveitarfélagið neitar alfarið að hafa hvatt til skaðlegrar hegðunar í kynlífi.

Í yfirlýsingu sagði talsmaður: „Það er rangt að halda því fram að með því að fræða börn sé verið að samþykkja skaðlega hegðun í kynlífi. Allt efni er hannað fyrir ákveðinn aldur og með velferð nemenda í huga.“

Þá bættu þeir við að kyrking, jafnvel án þeirra afleiðinga sem hún getur haft í för með sér, sé „ólögleg, hættuleg og refsiverð athöfn“.

Á samfélagsmiðlinum X hafnaði sveitarfélagið einnig ásökunum og kallaði þær „misinformation.“

Málið hefur vakið mikla umræðu á samfélagsmiðlum, þar sem margir foreldrar og fræðimenn lýsa yfir hneykslun og ótta við þá normaliseringu á ofbeldi sem þau telja að skólakerfið geti ýtt undir með því að gefa í skyn að hegðun af þessu tagi sé í lagi ef samþykki er fyrir hendi.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing