Eftir umdeilda Kastljósumræðu þar sem Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, og Þorbjörg Þorvaldsdóttir úr Samtökunum ’78 tókust hart á um stöðu hinsegin fólks, hefur gagnrýni dunið á Snorra úr mörgum áttum. Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, kallaði framgöngu hans „vandræðalega og gamaldags“ og sakaði hann um að flytja inn bandaríska fordóma.
Segir gagnrýnina byggða á orðum sem aldrei féllu
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hefur nú stigið fram til varnar flokksbróður sínum. Í færslu á X segir hann að erfitt sé að sjá hvað í máli Snorra hafi kveikt svo ofsafengin viðbrögð. Hann telur andstæðinga hafa byggt gagnrýnina á orðum sem Snorri hafi aldrei sagt.
„Í stað þess að ræða málflutning hans (og gagnrýna) birtist einbeittur vilji til að snúa út úr og forðast eðlilega umræðu. Þess í stað eru athugasemdir Snorra málaðar upp sem ‘hatur’ eða jafnvel hvatning til ofbeldis,“ skrifar Sigmundur.
Harðar deilur eftir Kastljós: Snorri Másson sakaður um að flytja inn bandaríska fordóma
Hann segir Snorra „halla undir raunverulegt frjálslyndi“ og að hann hafi ítrekað tekið afstöðu gegn ofbeldi. Þá gagnrýnir hann sérstaklega tillögu borgarfulltrúa Framsóknar um að borgarstjórn ályktaði gegn sjónarmiðum þingmannsins.
„Ef hugmyndin er að banna þingmanninum Snorra Mássyni að viðra skoðanir sínar og ræða á opinberum vettvangi, er rétt að stíga fast til jarðar,“ skrifar Sigmundur Davíð og undirstrikar að frjáls tjáning sé grundvallaratriði í lýðræðissamfélagi.
„Við þurfum fleiri þingmenn sem þora“
Í færslu sinni leggur hann loks mikla áherslu á grundvallarréttinn til tjáningar:
„Frjáls tjáning er grundvallaratriði í okkar samfélagi og rétturinn til að skiptast á skoðunum sömuleiðis. Á þeim rétti hafa framfarir og grundvallarréttindi borgaranna byggst, ekki hvað síst minnihlutahópa,“ skrifar hann.
„Mitt mat, eftir að hafa verið nokkuð lengi í þessum bransa, er að við þurfum fleiri þingmenn sem þora meðan aðrir þegja.“
Þegar ég skoða umfjöllun fjölmiðla og samfélagsmiðla eftir gærdaginn sýnast mér ummæli Snorra Mássonar, hins unga og efnilega þingmanns Miðflokksins, í Kastljósi í fyrrakvöld hafa vakið talsverða athygli.
Þó hefur reynst erfitt að henda reiður á því hvað af því sem hann sagði… pic.twitter.com/iEOfsWsHoD
— Sigmundur Davíð (@sigmundurdavid) September 3, 2025