Rjóminn ofan á íslensku þungarokkssenunni

Rokkhátíðin Rokkjötnar verður haldin í Vodafone-höllinni þann 27. september næstkomandi. Metalhausar vilja hafa sitt á hreinu og Nútímanum er því bæði ljúft og skylt að birta tímaplan þessarar rokkveislu:

16.00–16.35 Melrakkar
16.50–17.25 In Memoriam
17.40–18.15 Strigaskór nr. 42
18.30–19.10 Beneath
19.25–20.15 Brain Police
20.30–21.30 Sólstafir
21.45–22.45 Dimma
23.00–00.00 Skálmöld

Aðstandendur Rokkjötna fullyrða að hér gefi að líta rjómann sem flýtur ofan á íslensku þungarokkssenunni. Eða eins og segir í tilkynningu:

Hafi einhver talað um að rokkið væri dautt þá á það svo sannarlega ekki við um Ísland. Þannig gáfu Strigaskór nr. 42 út langþráða plötu sína Armadillo fyrir réttu ári síðan, níðþungarokkararnir í Beneath sendu frá sér meistaraverkið The Barren Throne í apríl á þessu ári, Dimma gerði allt vitlaust með Vélráðum sínum í október og Sólstafir eru hreinlega að breyta tónlistarsögunni með útgáfu á Óttu sem trónir nú á toppi sölulista um allt land, sem og víðar um heim. Skálmöld hyggur síðan á útgáfu á nýrri plötu, Með vættum, í október og Brain Police hefja árið 2015 með útgáfu á nýrri breiðskífu.

Ljóst er að tónleikarnir verða risavaxnir en risasviði og kraftmesta tækjakosti sem völ er á er lofað. Í tilkynningunni kemur einnig fram að Rokkjötnar vilji sjá íslenskt þungarokk vaxa og dafna enn frekar og eiga þá ósk heitasta að sem flestir taki þátt í þeirri uppbyggingu. „Þannig er miðaverði stillt í hóf og fólk sem ekki hefur náð 18 ára aldri er velkomið með forráðamönnum.“

Miðaverð er aðeins 5.990 krónur og er miðasalan fer fram á Miði.is.

Auglýsing

læk

Instagram