Rússnesk nettröll gera grín að dauða Íslendings sem féll í Úkraínu

Rússnesk nettröll hafa ráðist að Facebook-prófílmynd Kjartans Sævars Óttarssonar, Íslendings sem lést á víglínu í Úkraínu, og fyllt athugasemdirnar af hæðni, fögnuði og ógeðslegum áróðri. Þar er dauða mannsins fagnað, hann gerður að „memes“ skotmarki og líf hans afmennskað með skipulögðum hætti.

DV fjallaði fyrst um andlát Kjartans, sem var 51 árs gamall þegar hann lést eftir að hafa gengið til liðs við úkraínska herinn. Kjartan var búsettur í Svíþjóð áður en hann hélt af stað og flaug þaðan til Úkraínu. Það sem fylgdi í kjölfarið á Facebook er hins vegar dapurlegt dæmi um hvernig rússnesk nettröll nýta dauða einstaklinga markvisst í upplýsingastríði.

Skipulögð árás rússneskra yfirvalda

Auglýsing

Athugasemdirnar eru augljóslega ekki tilviljanakenndar né sprottnar af sjálfstæðum skoðanaskiptum. Þær bera öll einkenni skipulagðrar netárásar þar sem sömu skilaboð og sömu „brandarar“ eru endurteknir aftur og aftur, oft frá reikningum sem virðast nýstofnaðir eða augljóslega falskir. Þar er dauða manns fagnað, hann afmennskaður og notaður sem hráefni í stríðsáróður.

Þetta er ekki umræða, ekki gagnrýni og ekki skoðanaskipti heldur virðist þetta vera þaulskipulögð herferð.

Gert grín að dauða manns

Í athugasemdunum má lesa köld og stutt skilaboð á borð við „Dead“, „This didn’t age well“ og fullyrðingar um að „engin muni syrgja“ Kjartan.

Aðrir ganga lengra og birta myndir af látnum hermönnum, stundum í eldi, með það eitt að markmiði að gera lítið úr dauða hans og niðurlægja minningu hans.

Ekki fyrsta fórnarlambið – og því miður ekki það síðasta

Facebook-aðgangur Kjartans er því miður ekki fyrsta fórnarlamb slíkra árása. Rússnesk nettröll hafa ítrekað ráðist að prófílum fallinna hermanna, blaðamanna og óbreyttra borgara víða um Evrópu. Markmiðið er alltaf hið sama: að gera dauðann merkingarlausan, brjóta niður samkennd og sýna að mannslíf andstæðinga Rússlands skipti engu máli.

Þetta er hluti af sama stríði og fer fram á víglínunni – bara án vopna, en með lygi, hatri og kerfisbundinni niðurlægingu.

Fór til Úkraínu af eigin vilja

Kjartan Sævar Óttarsson fór til Úkraínu af eigin vilja. Hann sagði sjálfur að frelsi og réttlæti væru ekki sjálfgefin og að þjóðir yrðu að standa saman þegar ráðist væri á þær með ofbeldi. Hann lést á víglínunni eftir skamman tíma í landinu.

Samkvæmt frásögn bróður hans, Harðar Harðarsonar, hafði Kjartan sent honum skilaboð um að ekki yrði hægt að ná í hann næstu tvær vikurnar, skilaboð sem bárust um tuttugasta desember. Síðar hafi maður sem sagðist hafa barist við hlið Kjartans haft samband við fjölskylduna og greint frá því að hann væri látinn. Síðar um daginn barst fjölskyldunni staðfesting á andlátinu.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing