Salka Sól fjórði þjálfarinn í The Voice

Tónlistar- og fjölmiðlakonan Salka Sól Eyfeld er fjórði og síðasti þjálfarinn í hæfileikaþættinum The Voice, sem hefur göngu sína á Skjá einum föstudaginn 25. september. Þetta kemur fram í Fréttatímanum í dag.

Sjá einnig: Salka Sól heillaði Sigmund Davíð upp úr sitthvorum skónum

Auglýsing

Í dag kom í ljós að Unnsteinn Manuel væri einn af þjálfurunum. Áður hafði komið fram að Svala Björgvins og Helgi Björns yrðu einnig þjálfarar í þættinum.

Í Fréttatímanum segist hún vera mjög spennt fyrir verkefninu.

Þó ég sé kannski í yngri kantinum í þessu teymi bý ég að hellingi af reynslu sem ég get vonandi deilt með mínum hópi.

Salka Sól hefur verið upptekin í Sumardögum á RÚV undanfarið. Þá er undirbúningur nú á fullu fyrir frumsýningu Hróa hattar í Þjóðleikhúsinu en þar er hún tónlistarstjóri.

Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að tugir efnilegra söngvara hafi verið boðaðir í prufur fyrir The Voice. Íslenski þátturinn verður eins og frumgerðin – fjórir dómarar munu sjá um að þjálfa söngvarana og keppa sín í milli.

The Voice hóf göngu sína í Hollandi árið 2010 en var fljótlega keyptur til sjónvarpsstöðvarinnar NBC í Bandaríkunum. Þátturinn er sýndur í 120 löndum og Ísland verður 61. landið sem gerir eigin útgáfu af þættinum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing