Samtökin ’78 kæra tíu manns fyrir hatursummæli

Samtökin ’78 hafa kært tíu einstaklinga til lögreglu fyrir hatursummæli sem þau telja refsinæm. Ummælin sem Samtökin ’78 kæra telja þau fela í sér háð, róg og smánun í garð hinsegin fólks vegna kynhneigðar þess og/eða kynvitundar. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Sjá einnig: Örskýring um hinseginfræðslu í Hafnarfirði

Auglýsing

Í Fréttablaðinu kom fram að samtökin ætluðu að leggja fram kæru hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu klukkan 8.30 í morgun.

Í yfirlýsingu frá stjórn Samtakanna ’78 kemur fram að þeir einstaklingar sem hefur verið ákveðið að kæra hafa kynt undir orðræðu sem vegur gróflega að rétti hinsegin fólks til friðhelgi einkalífs, fjölskyldu og fyllsta jafnréttis.

Réttinda sem vernduð eru af stjórnarskrá lýðveldisins Íslands og þeim alþjóðlegu sáttmálum sem Ísland er aðili að, þar með talið mannréttindasáttmála Evrópu.

Stjórn samtakanna segist harma þá neikvæðu umræðu sem fylgt hefur í kjölfar samþykktar bæjarstjórnar Hafnarfjarðar að því er varðar hinsegin fræðslu í grunnskólum.

Mikla athygli vakti þegar Nútíminn fjallaði um ummæli hlustenda Útvarps Sögu um hinseginfræðslu í Hafnarfirði.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing