Segir Miðflokkinn snýttan úr nös Donald Trump: „Hættuleg öfl eru á sveimi í íslensku þjóðfélagi“

Kolbrún Bergþórsdóttir, pistlahöfundur Fréttablaðsins, segir að hættuleg öfl í íslensku þjóðfélagi séu farin að opinbera sig hvað eftir annað í pistli sínum í blaðinu í dag. Hún segir að Miðflokkurinn sé til að mynda snýttur úr nös Donald Trump, Bandaríkjaforseta.

Sjá einnig: Miðflokkurinn bætir við sig fylgi – Stærri en Vinstri Græn og Samfylkingin

Í pistlinum skrifar Kolbrún um tillögu íslenskra stjórnvalda um óháða rannsókn á stöðu mannréttindamála á Filippseyjum sem var samþykkt í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Hún segir að fyrirfram hefði mátt ætla að óhugsandi væri að einstaklingar hér á landi tækju sér stöðu með stjórnvöldum sem hafa þá markvissu stefnu að myrða þegna sína.

„En hið ótrúlega gerðist, þegar krafist var rannsóknar yfir þessum stjórnvöldum þá framkallaði það fordæmingu hjá hópi fólks hér á landi,“ skrifar hún.

„Það er uggvænlegt að vita af einstaklingum hér á landi sem hlaupa í vörn fyrir forseta Filippseyja og koma skilmerkilega til skila þeirri skoðun sinni að hann hafi verið að vinna þjóðþrifaverk. Þessar raddir koma úr ólíklegustu áttum, jafnvel frá einstaklingum sem ættu að vita svo miklu betur. Þegar þessar raddir enduróma svo skoðanir sínar í fjölmiðlum þá er ekki laust við að fólki bregði. Þetta er málflutningur sem er algjörlega á skjön við þau lögmál sem siðaðar þjóðir viðurkenna.“

Hún bætir því við að Duterte, forseti Filippseyja, sé ekki eina dæmið um leiðtoga sem skeytir engu um mannréttindi og mannúð sem hefur fengið uppklapp hér á landi.

„Hinn hugmyndaríki raðlygari Donald Trump er forseti Bandaríkjanna og hatast við alla minnihlutahópa. Nýlega sagði hann að hörundsdökkar þingkonur af erlendum uppruna gætu farið heim til sín ef þeim líkaði ekki staða mála í Bandaríkjunum. Þegar hann vék talinu að einni þeirra á fundi söngluðu stuðningsmenn forsetans: „Sendið hana til baka.“ Þetta var óhuggulegt augnablik múgæsingar sem Trump skapaði sjálfur. Hann og ríkisstjórn hans bera ábyrgð á því að börn flóttamanna eru aðskilin frá foreldrum sínum við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó og geymd í sérstökum búðum þar sem aðstæður eru skelfilegar. Enginn einstaklingur með vott af siðferðiskennd ætti að geta afsakað slíkt, en það vefst samt ekki fyrir einhverjum Íslendingum.“

Hún segir Miðflokkinn vera eins og snýttan út úr nösinni á Trump og að þar séu „mini-Trumpar á svo að segja öllum póstum“

„Þar er þingmaður sem hleypur í vörn fyrir Duterte og þar er formaður sem nýlega gerði lítið úr hinni sænsku Gretu Thunberg í blaðagrein. Áherslur flokksins eru allar æði Trumps-legar. Hættuleg öfl eru á sveimi í íslensku þjóðfélagi og hreiðra um sig á ýmsum stöðum. Viðvörunarljósin blikka.“

Auglýsing

læk

Instagram