Í þætti Rauða borðsins ræða Jón Trausti Reynisson, blaðamaður á Heimildinni, og Ólafur Arnarson, blaðamaður á DV, þróunina í fjölmiðlaheiminum eftir frekari skerðingu á fréttaþjónustu einkarekinna miðla.
Jón Trausti segir stöðu einkarekinna miðla hafa versnað til muna á undanförnum árum á sama tíma og fjárframlög til Ríkisútvarpsins hafi aukist.
Hann útskýrir að flestir blaðamenn séu sammála um að veik staða sjálfstæðra miðla sé skaðleg fyrir upplýsta opinbera umræðu og þar með lýðræðið.
Varar við einokun á fréttamiðlun
Að mati Jóns Trausta skapast alvarleg hætta ef RÚV stendur eitt eftir sem burðarás í fréttamiðlun landsins.
Hann segir fjölbreytta miðlun nauðsynlega fyrir gagnsæi, aðhald og sjálfstæða rannsóknarvinnu.
Áhyggjur af því að RÚV gæti verið misnotað ef ákveðin öfl komast til valda
Jón Trausti bendir á að einkareknir fjölmiðlar verði að vera öflugir til að standa vörð um almannahagsmuni.
Hann nefnir að í löndum eins og Ungverjalandi og Póllandi hafi stjórnmálahreyfingar með „vafasama lýðræðishefð“ náð verulegum áhrifum á fjölmiðlum, meðal annars með því að veikja sjálfstæði opinberra fjölmiðla og hygla þannig stjórnvöldum.
„Við vitum ekkert hvernig stjórnvöld verða hér eftir nokkur ár. Og ef það er búið að, nokkurn veginn, eyða einkareknum fjölmiðlum, að miklu leyti, langmestu leyti, og þeir snúast um að afrita eitthvað fyrirfram unnið efni til að fá flettingar, til að skrimta, til að lifa af dag frá degi, þá held ég að það sé ekki áhætta sem við viljum bjóða upp á.“ Segir Jón Trausti og nefnir sérstaklega Miðflokkinn í þessu samhengi.
Segir hann flokkinn lengi hafa haft horn í síðu RÚV og að vont sé til þess að hugsa hvað gæti gerst komist hann í þá stöðu að geta fjarlægt armslengd stjórnmálanna frá stofnunni sem heyri auðvitað undir stjórnvöld.
„Það er það sem maður hefur áhyggjur af, að öll eggin séu sett í eina körfu sem er í höndunum á stjórnmálavaldinu.“
Fréttin hefur verið uppfærð. Í upphaflegri útgáfu var rangt eftir Jóni Trausta haft að hann teldi RÚV þurfa að vera sterkt til þess að sporna við uppgangi Miðflokksins. Hið rétta er að hann undirstrikaði mikilvægi þess að einkareknir fjölmiðlar væru sterkir ef ske kynni að Miðflokkurinn kæmist yfir stjórn RÚV. Beðist er velvirðingar á þessu.