Selma Björns kemur í stað Þórunnar Antoníu

Selma Björnsdóttir verður dómari í Ísland Got Talent á Stöð 2 í vetur. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Hún kemur í stað Þórunnar Antoníu, sem á von á sína fyrsta barni á næstu dögum.

Þórunn Antonía var dómari síðasta vetur ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, Jóni Ragnari Jónssyni og Bubba Morthens. Jóhanna Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri sjónvarpssviðs 365, segir allan þáttinn hafa verið tekinn til endurskoðunnar:

Við tókum allt til endurskoðunar í sumar enda undir mikilli pressu að utan að þróa þáttinn áfram í seríu 2 og ákváðum því meðal annars að hrista upp í dómnefndinni. Stefnum að því að gera Talent enn flottari en í fyrra. Engu að síður stóð Þórunn Antonía sig frábærlega í fyrra.

Prufur fyrir næstu þáttaröð fara fram um næstu helgi í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.

Auglýsing

læk

Instagram